 |
Mætt við Gindavíkur hraunið. Stórkostleg sýn og agaleg á sama tíma. |
Í mars á þessu ári poppaði upp sú pæling at fara til Íslands. Strákarnir hafa aldrei ferðast um landið með mömmu sinni og Jara hafði aldrei heimsótt "heimalandið". Við fórum í gang að skoða hvort þetta væri yfir höfuð hægt. Og jú, þetta gekk, og punkturinn yfir i-ið var að Stebbi og Halldóra lánuðu okkur bíl svo það færi vel um okkur. Söknum bílsins mikið nú þegar þegar við setjumst í rúmenska Renaultin okkar.
Ferðin var gróflega plönuð þannig að fara fyrst norður á Dalvík og vera þar í ca viku og síðan seinni vikan í bústaðnum hjá Pabba.
Við byrjuðum ferðina í Köben, vorum eina nótt í Köben og svo eldsnemma um morguninn var tekið flug til Osló og svo þaðan til Íslands.
 |
Magnea í Osló...náði 55 mínútum. |
Við lentum á Íslandi rétt fyrir hádegið og svo seinni partinn var brunað í Hveragerði og strákarnir sóttir til pabba þeirra og svo á KFC :) og norður. Við vorum komin á Dalvík um tíuleytið um kvöldið.
 |
Lentur á Dalvík |
 |
|
| Fyrsti göngutúr Jöru á Íslandi við Böggvistaðafjall.
|
|
|
Bróðir Magneu, Máni, og konan hans Harpa og börnin Jakob og Yrja voru með okkur fyrstu vikuna á Dalvík. Ótrúlega gaman að sitja og kjafta og Máni, snillingur í eldhúsinu græjaði fisk í raspi, pizzur, læri og ég veit ekki hvað.
 |
Poppað á gamla mátan í 70 ára gömlum pottum. Harpa er meistari í poppi. |
 |
Jara, Fróði, Jakob, Krummi og Yrja í sófanum á Kirkjuveginum í Dalvík. |
 |
Máni og Jakob á leið út í Hrísey. |
Sundlaugin á Dalvík var heimsótt 5 eða 6 sinnum þessa dagana. Guð hvað ég sakna sundlauganna á Íslandi. Ég tók skrefið og skellti mér í kaldan pott!
Magnea var einnig dugleg að hitta Birnu ömmu og rúnta um sveitina og spjalla. Birna er 92 ára töffari.
 |
Krakkarnir með ömmu Birnu. Jara átti erfitt með að vera eðlileg á myndum í þessari ferð :) |
Svo tókum við Máni vel á því að koma bjór niður í gegnum þvagrásirnar. Kaldi var drukkinn í stórum stíl ásamt vel af ýmsum íslenskum bjórtegundum.
 |
Klárlega besti lager bjórinn. Væri til í að flytja hann inn til DK. |
 |
Mér fannst þessi góður.
|
 |
Og þessi... |
Fyrir norðan var Siglufjörður heimsóttur í brakandi blíðu. Ég fór í svakalegt nostalgíukast og hreinlega tók inn Siglufjörðinn í blíðunni. Við fengum smá snæðing og svo karfa við skólann og á eftir var rölt um bæinn. Ég fann æskuheimili mömmu á Hólaveginum og Magnea fann hvar pabbi hennar, Magnús, ólst upp. Svo var kíkt í kirkjugarðinn og fundum leiði ömmu og afa, Gylfa og Guggú. Eiginlega rambaði á þau þarna.
 |
Skrifað í fjöruna á Sigló |
 |
Fjaran á Sigló |
 |
Landslagsmynd á Sigló |
 |
Fjaran á Sigló |
 |
Aðalgatan á Sigló hefur breyst aðeins...og enginn bíó ís :( |
 |
Útsýnið frá kirkjugarðinum á Sigló |
 |
Jara að tína blóm á Sigló. |
 |
Afi og Amma |
Veðrið fyrir norðan var glimrandi allan tímann. Einn dagur sem var almennilega blautur annars flottir dagar.
Við lengdum heimsóknina fyrir norðan um tvo daga til að ná Hrísey og sundlauginni á Akureyri.
 |
Á leið út í Hrísey
|
Fyrir Sunnan voru svo fossarnir skoðaðir, rúlluðum í Vík. Lágum í læknum í Reykjadal. Sund í Kef og Laugardal. Plokkfiskur, saltfiskur og reyktur silungur. Pútt í Keflavík, Skessan og ís í Úngó (besti vélarísinn sem ég fékk í ferðinni).
 |
Tveir úr tungunum |
 |
Jara "pantaði pylsu með öllu, nema sinnep, tómat, remolaði, lauk og pylsu" Bara Steiktur laukur takk. Myndin tekin í Vík |
 |
Fínasta mynd af okkur Magneu. |
 |
Pabbi og Amma Erla |
 |
Stefán Agnar að sneiða saklaus lömb. |
 |
Barnabarnabörn og barnabarn. |
 |
Púttað á púttvellinum í Kef. |
 |
Horft til sjávar frá skessuhellinum. |
 |
Skessustóllinn! |
 |
Klifrað í minnismerkinu góða. Þarna klambraði ég nú nokkrum sinnum í den. |
Þetta voru yndislegar 2 og hálf vika, með áherslu á að leyfa börnunum að kynnast landinu og ekki þreyta þau með endalausum kaffiboðum með gömlu frændfólki og vinum. Sú ferð kemur seinna :)
 |
Flakkið okkar á Íslandi. |
Ummæli